
Götuhjólaæfingar HFA sumarið 2025 verða á þriðjudögum og fimmtudögum, kl. 18:00 frá 29. apríl til 26. júní. Æfingarnar henta öllum sem vilja æfa sig á götuhjóli, ná betri tökum á því og hjóla í hópi með öðrum.
Kynningarfundur verður haldinn í verslun Útisport, miðvikudaginn 2. apríl klukkan 18:00.
Einnig verður hægt að máta hjólafatnað HFA sem hægt er að sérpanta hjá Pedal.is til 6. apríl. Sjá: https://pedal.is/collections/hjolreidafelag-akureyrar
Getustig skiptir ekki máli, æfingarnar henta bæði byrjendum og lengra komnum.
Upphafsstaðir æfinga verða misjafnir og auglýstir í Sportabler, þar sem öll helstu samskipti fara fram. Einnig verður búinn til lokaður hópur á Facebook fyrir þau sem eru skráð á æfingar.
Þjálfarar: Hafdís Sigurðardóttir, Rögnvaldur Már Helgason, Silja Jóhannsdóttir, Sóley Kjerúlf auk gestaþjálfara
Skráning: https://www.abler.io/shop/hfa
Comments